Wednesday, 10.03.10
Kaupaukar og bónusar.
Ég er löngu hættur að skilja á hvaða forsendum kaupaukar og bónusar eru
greiddir. Hélt í blindni að það væri e-ð tengt því að fyrirtæki gengu
vel og skiluðu hagnaði. Ekki að eyða 2.5 milljörðum í bónusa þegar
fyrirtækið er rekið með 49 milljarða tapi, og 5 sinnum meira tapið árið
á undan.
http://mbl.is/mm/vidskipti/frettir/2010/03/10/fa_kaupauka_thratt_fyrir_tap/
Finnst enn verra að fréttin kemur ekki einusinni á óvart, því sambærilegar fréttir hafa komið reglulega síðustu 12-15 mánuði af fyrirtækjum í fjármálageiranum.
Mér finnst hinsvegar í fínu lagi að bónusar o.þ.h. séu greiddir út hjá fyrirtækjum sem skila hagnaði í raun og eru að blómstra núna (fiskvinnsla t.d....)
Bleh, veit ekki hvenær þetta hættir að fara í taugarnar á mér.

Sunday, 07.03.10
Sjaldan er ein báran stök...
... í tólf vindstigum.
Leigjendurnir sögðu upp leigunni. Slíkt gerist. Var með pottþétta leigjendur, vesen að þurfa að finna nýja svoleiðis. Vona bara að næstu leigjendur séu jafn góðir.
Og svo var brotist inn í geymsluna mína á Hverfisgötunni. Ekki í fyrsta skipti, en í fyrsta skipti sem eitthvað er tekið. (Síðast þegar það var brotist inn í hana þá var einhver pólverji að reyna að draga kapal í gegn fyrir gervihnattasjonarp...)
En já, á eftir að finna út hvað nákvæmlega vantar. (Getur orðið erfitt, ég á ekki til lista yfir allt sem ég á að eiga til að geta borið saman við það sem ég á ennþá...)
En við fyrstu sýn tapaðist tölvudót... amk vantar hálfan kassa og e-ð fleira. Og allt í rúst auðvitað...
Samt sem áður, þá er þetta ennþá óþægileg tilfinning að vita að einhver hefur verið að gramsa í dótinu manns.
Svo tók bíllinn minn upp á því að vera með leikaraskap í gær.
Og fyrst að bíllinn minn er ekki bjalla, þá var hlutverk Herbie ekki í boði. Þannig að í staðinn ákvað bíllinn minn að vera spasstíski frændi Herbie sem er með Downs heilkenni.
Byrjaði að það var ekki séns að snúa lyklinum í svissinum alveg til baka til að ná honum út. Tók þar af leiðandi 5 mínútur að komast úr bílnum þegar ég ætlaði að fara að kjósa. (Ekki gat ég skilið bílinn eftir með lykilinn í svissinum.)
Allt í gúddí, svo var farið í IKEA. Sama vandamál þar með læsinguna. Nema þegar ég kom úr IKEA þá gat ég ekki lengur opnað bílinn með rímótinu. Old-fashion lyklaríhurðina virkar enn, sem betur fer.
Og þá tók bíllinn smá spassakast. Setti hazardljósin á fullt... í smá stund, og hætti svo í smá stund, og svo hazardljósin aftur á fullt, og lét öllum illum látum.
Eftir smá rifrildi við bílinn þá gafst ég upp og ætlaði bara að keyra með hazardljósin á.
Bíllinn launaði mér þá ákvörðun með því að gera afturrúðuhitarann og öll "auka" stjórntæki, svo sem ljósastillingar, rúðuþurrkur og miðstöðina óvirk.
Ég þurfti því að biðja farþegana að anda minna, svo að bíllinn fylltist ekki að móðu.
Móðan var að vísu það eina sem kom í veg fyrir að aðrir vegfarendur sáu hvaða fáviti ákvað að keyra með hazardljósin í botni frá IKEA og niður í Toys'R'US í Smáranum.
Eftir að hafa eytt öðrum 10 mín í að ná lyklinum úr svissinum, þá tók ég bara rafgeyminn úr sambandi meðan ég skrapp í Toys'R'US og Bónus.
Það sem bíllinn var fúll þegar ég kom til baka. Svona einsog hann hefði ekki tekið lyfjaskammtinn sinn. Shii. Fyrir utan hazardljósin og allt annað sem var að, þá fór flautan á fullt. Sá ákvað semsagt að nota þjófarvarnarkerfið til að hefna sín á mér.
Eftir smá stund tókst mér að róa bílinn niður, og hætta þessum látum.
Bíllinn ákvað að vísu að stríða mér með hazardljósunum af og til, og já, rúðuþurrkurnar og "auka" stjórntækin virkuðu ekki út daginn.
Það var svo ekki fyrr en á miðnætti að bíllinn var orðinn þreyttur og nennti þessu ekki lengur, og allt fór að virka eðlilega.
Ég passaði mig á að bjóða góðan daginn áðuren ég settist í bílinn í dag, og það skilaði sér.
Smá kurteisi, og bíllinn ákvað að leyfa mér að nota öll stjórntæki í dag, og ekkert vesen.

Sunday, 14.02.10
Bollabollabolla...
Talandi um að vera gölluð vara...
Ég braut tönn, fór í massíft tannlæknasession til að láta draga tönnina (ásamt þrem rótum) úr. Nú er komin vika síðan og ég er ennþá bólginn, og þarf að tyggja allan mat vinstra megin í munninum.
Sem væri ekki svo slæmt, ef ég hefði ekki fengið sár eða munnangur eða e-ð, og sár á tunguna, vinstra megin í munninum.
Bömmer, en ohwell.
Annars var ég að hugsa til þess að hérna í denn fór amma í berjaferðir, og stundum fór ég með.
Ég kom samt yfirleitt ekki með mikið af berjum heim. Bæði krækiberin og bláberin fóru flest beint upp í munn hjá mér en ekki í berjafötuna.
Engu að síður, þá langar mig núna ótrúlega mikið í góð aðalbláber, rjóma og sykur...
Talandi um óhollt og gott.
En verð víst að láta mig dreyma í bili...
Ég braut tönn, fór í massíft tannlæknasession til að láta draga tönnina (ásamt þrem rótum) úr. Nú er komin vika síðan og ég er ennþá bólginn, og þarf að tyggja allan mat vinstra megin í munninum.
Sem væri ekki svo slæmt, ef ég hefði ekki fengið sár eða munnangur eða e-ð, og sár á tunguna, vinstra megin í munninum.
Bömmer, en ohwell.
Annars var ég að hugsa til þess að hérna í denn fór amma í berjaferðir, og stundum fór ég með.Ég kom samt yfirleitt ekki með mikið af berjum heim. Bæði krækiberin og bláberin fóru flest beint upp í munn hjá mér en ekki í berjafötuna.
Engu að síður, þá langar mig núna ótrúlega mikið í góð aðalbláber, rjóma og sykur...
Talandi um óhollt og gott.
En verð víst að láta mig dreyma í bili...
Monday, 01.02.10
Út að borða
Helgin var frábær. Rólegheit, útaðborða og bíó.
Á laugardeginum fórum við Vala, Maggi&Unnur og Gunni&Ásta út að borða á Grillhúsi Guðmundar, og svo í bíó á Sherlock Holmes.
Myndin er ágætis afþreying, félagsskapurinn awesome. En ekki verður sömu sögu að segja um Grillhúsið á Tryggvagötu.
Á helgarmatseðlinum var nautasteik með sósu, kartöflum og salati, ég var alveg til í nautasteik.
Svo fylgdi líka súpa dagsins með.
Súpa dagsins var gamalt soð með sveppum í og kallaðist sveppasúpa.
Með mínum einstöku hæfileikum tókst mér að taka lokið af súpupottinum og setja á bólakaf í súpunni.
En kjötið, meina, hversu mikið er hægt að klúðra kjöti? Það er hægt að ofelda það.
Ég er ekki viss um að það hafi verið gert í þessu tilfelli. Það leit út fyrir að vera pínu rautt í miðju, en bragðið.... bragðið var viiiðbjóðslegt. Ég er ekki einusinni viss um að þetta hafi verið nautakjöt. Ég þurfti að athuga nokkrum sinnum hvernig þetta hafði verið eldað, því það fyrsta sem mér datt í hug var að kjötið hefði verið grillað í svona 36 tíma, og svo hefði einhver tekið sprautu með blóði og sprautað inn í miðjuna til að láta líta út fyrir að það væri medium-rare.
En eftiráaðhyggja, þá grunar mig að kjötið hafi runnið út einhverntíman í byrjun árs 2008, og verið í frysti síðan þá, fengið svo að þiðna i eina viku þar til ég fékk það á diskinn minn.
Við erum að tala um að ég notaði dijon sinnepið sem er á borðinu til þess að bragðbæta kjötið til þess að koma því ofanímig.
HVER NOTAR DIJON SINNEP Á KJÖT?! Ég, þegar kjötið er myglað.
Gef grillhúsinu mínus-þrjár-stjörnur.
En í gær fórum við Vala út að borða á Scandinavian á Laugavegi 24.
Það var frábært.
Djúpsteiktur camelbert og hvítlauksristaðir humarhalar í forrétt. Kjúklingaeitthvað og Surf&Turf í aðalrétt. Og svo súkkulaði og eplakökur í eftirrétt.
Þjónustan var skemmtileg.
Forrétturinn var frábær.
Aðalrétturinn var líka frábær.
Eftirrétturinn var "lala". Skv völu þá hefði alveg mátt hita frönsku súkkulaði kökuna aðeins betur. En svoleiðis á að vera borið fram volgt, ekki kalt. Eplakakan var líka "lala". Hef bæði fengið verra og betra.
Mæli með að sleppa bara eftirréttunum, og þá fer maður massa sáttur þarna út.
Gef Scandinavian "ég væri til í að koma aftur þangað og borða, og myndi mæla með staðnum" margar stjörnur.
Næst: Hoppa og skoppa út vikuna til að ná af mér matnum sem var borðaður um helgina.
Á laugardeginum fórum við Vala, Maggi&Unnur og Gunni&Ásta út að borða á Grillhúsi Guðmundar, og svo í bíó á Sherlock Holmes.
Myndin er ágætis afþreying, félagsskapurinn awesome. En ekki verður sömu sögu að segja um Grillhúsið á Tryggvagötu.
Á helgarmatseðlinum var nautasteik með sósu, kartöflum og salati, ég var alveg til í nautasteik.
Svo fylgdi líka súpa dagsins með.
Súpa dagsins var gamalt soð með sveppum í og kallaðist sveppasúpa.
Með mínum einstöku hæfileikum tókst mér að taka lokið af súpupottinum og setja á bólakaf í súpunni.
En kjötið, meina, hversu mikið er hægt að klúðra kjöti? Það er hægt að ofelda það.Ég er ekki viss um að það hafi verið gert í þessu tilfelli. Það leit út fyrir að vera pínu rautt í miðju, en bragðið.... bragðið var viiiðbjóðslegt. Ég er ekki einusinni viss um að þetta hafi verið nautakjöt. Ég þurfti að athuga nokkrum sinnum hvernig þetta hafði verið eldað, því það fyrsta sem mér datt í hug var að kjötið hefði verið grillað í svona 36 tíma, og svo hefði einhver tekið sprautu með blóði og sprautað inn í miðjuna til að láta líta út fyrir að það væri medium-rare.
En eftiráaðhyggja, þá grunar mig að kjötið hafi runnið út einhverntíman í byrjun árs 2008, og verið í frysti síðan þá, fengið svo að þiðna i eina viku þar til ég fékk það á diskinn minn.
Við erum að tala um að ég notaði dijon sinnepið sem er á borðinu til þess að bragðbæta kjötið til þess að koma því ofanímig.
HVER NOTAR DIJON SINNEP Á KJÖT?! Ég, þegar kjötið er myglað.
Gef grillhúsinu mínus-þrjár-stjörnur.
En í gær fórum við Vala út að borða á Scandinavian á Laugavegi 24.Það var frábært.
Djúpsteiktur camelbert og hvítlauksristaðir humarhalar í forrétt. Kjúklingaeitthvað og Surf&Turf í aðalrétt. Og svo súkkulaði og eplakökur í eftirrétt.
Þjónustan var skemmtileg.
Forrétturinn var frábær.
Aðalrétturinn var líka frábær.
Eftirrétturinn var "lala". Skv völu þá hefði alveg mátt hita frönsku súkkulaði kökuna aðeins betur. En svoleiðis á að vera borið fram volgt, ekki kalt. Eplakakan var líka "lala". Hef bæði fengið verra og betra.
Mæli með að sleppa bara eftirréttunum, og þá fer maður massa sáttur þarna út.
Gef Scandinavian "ég væri til í að koma aftur þangað og borða, og myndi mæla með staðnum" margar stjörnur.
Næst: Hoppa og skoppa út vikuna til að ná af mér matnum sem var borðaður um helgina.
Friday, 22.01.10
4 mánuðir
Ársþriðjungur síðan ég bloggaði síðan.
Á þessu tímabili hefur fólk notað leitarorð eins og "regnbogakoss" (gay...) og "vinalínan" (depressed gay?).
Og svo svona hefðbundari leitarorð eins og "sturtu" (væntanlega einhver að leita að Ármanni).
Sá einnig að "rolo muffins" var meða leitarorða. Núna langar mig í rólo muffins.
En fleira hefur á daga mína drifið.
Eftir tæpa þrjá mánuði verð ég pabbi í fyrsta sinn. Einusinni er alltaf fyrst. Er búinn að sjá verðandi erfingja í sónar og 3D sónar líka.
Kannski verð ég duglegri að blogga næsta ársþriðjung.

Older articles:
15.08.2009
12.08.2009
20.07.2009
31.05.2009
21.05.2009
10.05.2009
03.05.2009
02.05.2009
01:53:14 -