Wednesday, 12.08.09
Tannlæknar
Fyrr í sumar fór ég til tannsa. Væri ekki í frásögur færandi nema að það stóð til með að rótfylla eina tönnina mína.
Ferðin var ekkert sérstaklega skemmtileg. Því eftir að það kom í ljós að fyrstu tvær deyfingarnar voru ekki að hafa tilætlaðan árangur, þá var ákveðið að það þyrfti að deyfa mig beint í taug.
Til þess að hægt sé að deyfa beint í taug, þarf fyrst að komast að henni, með bor.
Þannig eftir að það var borað að tauginni með tilheyrandi sársauka, var nál stungið beint í og deyfður. Það er ógeðslega vont að láta stinga nál í taug.
En allt kom fyrir ekki, mest allur tíminn fór í að laga til rótargöngin og eitthvað, þannig að ekki var nægur tími fyrir rótarfyllingu. Ég fékk því svona tímabundna-fyllingu, og átti tíma í gær þar sem átti að rótfylla.
Sú tímabundna var fjarlægð, og aftur virkaði deyfingin ekki nóg þannig að ég var deyfður í taug. En skárra núna því það þurfti ekki að bora að tauginni. Spenntist bara allur upp eins og það væri verið að gefa mér raflost.
Eftir næstum klukkutíma af veseni gafst tannsi upp, setti aðra tímabundnafyllingu og ætlar að senda mig til annars tannsa, sem á að vera sérfræðingur.
Og sá á ekki tíma fyrr en 14 sept. jibbí, eða þannig.
Þannig að núna er ég með trépinna og bómul fastan í tönninni minni, með smá steypu yfir, og þarf að vera með í heilan mánuð. Og á meðan þarf ég að lifa með því að ef ég bít fast, eða skakkt á tönnina, þá ýtist pinnin eða e-ð á taug, og það er ógeðslega vont!
Urgh!

Monday, 20.07.09
Neysla...
Ég tók þá ákvörðun síðustu helgi að kötta aftur á kókneysluna mína. Hef oft hætt áður, svona eins og reykingarfólkið, og svo byrjað aftur. Svona eins og þegar reykingarfólk fellur með því að fá sér bara smók á djamminu, og svo bara rettu á djamminu, og svo bara pakka á djamminu... og voila. Þá hef ég byrjað aftur með því að fá mér eitt glas þegar farið er út borða. Og svo eitt glas með góðum mat. Og svo eitt glas með mat. Og svo fleiri glös með mat. Og áðuren ég veit af þá er þetta í lítratali.Ég ákvað s.s s.l. helgi að reyna að hætta þessu. Og ákvað í fyrsta skrefi að minnka þetta um 70-80% og fara niður í hámark hálfan líter á dag til að byrja með, og svo sjá til með framhaldið. Vatnsneyslan hefur aukist á móti, sem er gott.
En þetta hefur eitt áhugavert side-effect. Um leið og þessi ákvörðun var tekin, þá fór kók og pepsi (coladrykkir) úr því að vera alltílagi á bragðið yfir í að vera ÆÐISLEGIR á bragðið.
Kalt kók hefur aldrei verið jafn gott og eftir að ég ákvað að hætta að drekka það.
Markmið: Alveg hættur fyrir lok sumarsins... Að drekka kóladrykki. Get fengið aðra gosdrykki sem undantekningar...
Sunday, 31.05.09
Worms í Xbox live
Hver á xbox 360 sem er nettengd og á einnig worms?Og langar að spila við mig online?
Gömlu góðu leikirnir auðvitað bestir
Ef þú átt xbox en ekki worms, þá kostar worms 400 microsoft points, eða einhverja hundraðkalla útí búð.
Any takers?
Thursday, 21.05.09
Today
Svona til að hafa eitthvað á jákvæðu nótunum líka.
Vaknaði alltof snemma, teppið tekið til, bakarísferð og allt gert ready fyrir picnik.
Skruppum í Hvalfjörðinn í sólina þar sem við borðuðum nesti og svona. Og Vala óð í á. Gott gaman.
Fór svo á krepputorg í hoppikastalaland. Tvennt mjög áhugavert þar.
Fyrsta er, að fullorðnir mega hoppa líka. Ég myndi segja að ég hefði ekki látið segja mér það tvisvar, en það er akkurat það sem gerðist. Því ég trúði því ekki í fyrra skiptið þannig að ég spurði aftur.
Eftir seinna jáið þá tók við klukkutími af litlum börnum og stórum Jónatan að hoppa um í loftkastalagarðinum og klifra upp og renna sér niður í allskonar hoppiköstulum.
Awesome.
Seinna, það kostar semsagt 800kr inn fyrir börn, en frítt fyrir fullorðna. Því það er ætlast til að forráðamenn fylgist með börnunum sínum.
Það er boðið upp á að halda afmælið þarna, og þá eru tvö verð í gangi:
1000kr PER BARN ef að engar veitingar eru innifaldar, en þú mátt koma með þínar eigin.
1500kr PER BARN ef að veitingar eru innifaldar.
Semsagt, ef að ég "panta" staðinn með fyrirvara fyrir barnaafmæli handa fimmtán(15) krökkum, þá er þetta díllinn sem ég fæ:
1. Ég má mæta með veitingar til að krakkarnir geti borðað eitthvað. (Í staðinn fyrir að fara með börnin annað að borða.)
2. Ég fæ ekki staðinn útaf fyrir mig.
3. Vegna þess að ég pantaði með fyrirvara og tryggði staðnum innkomu fyrir átta(
krakka, þá borga ég tvö hundruð (200) krónur aukalega PER BARN.
3.1 Hold that thought. Fær maður ekki magnafslátt(nei).
Ok, ég skil að maður vilji kannski bara hafa þetta einfalt og halda afmælið og matinn á einum stað. En fyrir 15 krakka þá borga ég þrjú þúsund (3000) krónur aukalega bara fyrir það eitt að krakkarnir MEGA borða þarna. Svo eru veitingarnar eftir.
Betra væri að mæta með allan hópinn án þess að láta vita á undan, og spara mér 3000kr, og borða annarsstaðar.
Kjánalegur díll, minnir mig á sniglatilboðið á bjór.
1 á 300.
2 á 500
3 á 1000
Ótrúlegt nokk þá eru þónokkrir sem taka "fá þrjá á þúsund" eftir að hafa drukkið nokkra...

Ef að dýr gætu tjáð sig ...
Ég er búinn að vera að horfa á Animal Rescue SPCA þætti Animal Planet og svona aðeins verið að pæla.Þegar við, mannskepnan, verður veik eða e-ð að, þá er okkar lífsvilji virtur. Og jafnvel þó svo að við viljum deyja og erum haldin sjúkdómi þannig að við getum ekki hreyft okkur né tjáð okkur, þá er okkur haldið á lífi gegn okkar vilja. Lítið um líknardráp í heiminum.
En hvernig er þetta með dýrin? Það er t.d. ekki mikill lífsvilji í hestum, og ef eitthvað kemur fyrir þá þá eru þeir oftar en ekki aflífaðir þó að manni finnist að það mætti vera hægt að gera meira. Ef að dýr eru grimm, þá eru þau aflífuð. Ef að dýr bitur mann, þá er það aflífað. Ef að dýr verður alvarlega veikt, þá er það aflífað. Ef að dýr missir útlim, þá er það (oft) aflífað. Ef að þetta er húsdýr og viðkomandi eigandi vill ekki eiga það lengur, þá er það svæft. Ef að bóndi tekur hreindýr í fóstur án leyfis Umhverfisstofnunar, þá er hótað að aflífa það nema að réttir pappírar/umsóknir séu til staðar. (Ekki að dýrið sé sótt og gefið frelsi eða neitt þannig.)
Ef þetta væri yfirfært yfir á okkur?
Manneskja greinist með krabbamein. Þá yrði hún drepin.
Manneskja greinist með MS eða parkisons. Þá yrði hún drepin.
Manneskja missir fleiri en einn útlim. Þá yrði hún drepin.
Manneskja verður alvarlega veik í marga daga. Þá er eflaust skynsamlegast að drepa hana bara.
Ef að lítið barn myndi finnast og einhver hjón myndi bjarga því, þá myndi félagsmálaeftirlitið hóta að drepa barnið í staðinn fyrir að ná í það og hlúa að því. Nema að hjónin gætu sýnt fram á rétta pappíra.
Allir sem verða dæmdir fyrir líkamsárás yrðu líflátnir. (Er það ekki þannig með hunda og flest önnur dýr? Ef þau ráðast á manneskju þá endar það á svæfingu?)
Og auðvitað allir sem eru dæmdir fyrir alvarlegri glæpi, þá yrðu þeir einnig líflátnir.
Þeir sem myndu ekki vilja eiga börnin sín, myndu í staðinn fyrir að ættleiða þau frá sér eða jafnvel bara ala þau illa upp, þá væri hægt að fara með þau og láta bara svæfa þau.
Ótrúlegt hvernig það virðist vera í lagi að svæfa dýr útaf allskonar ástæðum, en líknardráp er bannað á flestum stöðum í heiminum.
Hafa dýrin engan rétt?
Newer articles:
06.03.2010
13.02.2010
31.01.2010
22.01.2010
15.08.2009
Older articles:
10.05.2009
03.05.2009
02.05.2009
25.04.2009
16:03:39 -