Sunday, 10.05.09

Hit it


"Razine viðurkenndi að heimilisofbeldi væri stórt vandamál en sagði eiginkonurnar eiga þar töluverða sök á máli vegna hegðunar sinnar. Og hann sagðist ekki sáttur með hversu vel þær slyppu frá umræðunni." - Orð dómara á ráðstefnu um heimilisofbeldi.

Natti - pencil 12:07:18 - pencil permalink -

Sunday, 03.05.09

Hetja dagsins

LínuskautarÉg er svo mikil hetja að það hálfa væri alltof lítið því ég gæti pottþétt gert betur.

Eftir smá tiltekt í geymslunni rakst ég á línuskautana sem ég fékk að láni frá pabba snemma á þessari öld.

Ég varð nú að prufa, enda er ekkert mál að renna á línuskautum.
NOT!

Fyrir utan hvað það er erfitt fyrir líkama og sál að vera alveg við það að detta í hálftíma, þá var ég búinn að steingleyma hversskonar álag línuskautar setja á fótleggi og bak. Shees.

En ég prufaði þó, sko mig.

Nú óska ég bara eftir einhverjum sem er tilbúin(nn) til að detta með mér í sumar á línuskautum. Any takers?

Natti - pencil 18:29:59 - pencil permalink -

Lúxusvandamál.

Kaka er góðMér gengur eitthvað illa að fá meðaumkun þessa dagana.
Ég á við svona nokkur vandamál að stríða sem að enginn vill vorkenna mér útaf.

Vandamál 1:
Suma daga/helgar hef ég ekki undan við að vaska upp, alltaf komið óhreint leirtau í vaskinn nokkrum andartökum síðar.
Ástæða:
Vala á það til að baka kökur, og baka svo fleiri kökur, æðislegar gómsætar kökur, sem ég fæ svo (oftast) að smakka þegar þær eru svo-til nýkomnar úr ofninum.
...: Eina feedbackið sem ég fæ er að ég eigi að hætta þessu væli og það öfundar mig bara af því að fá svona gómsætar kökur.

Vandamál 2:
Mér gengur ekkert að koma mér í form & léttast.
Ástæða:
Vala á það til að baka kökur, og baka svo fleiri kökur, æðislegar gómsætar kökur, sem ég fæ svo (oftast) að smakka þegar þær eru svo-til nýkomnar úr ofninum.
...: Eina feedbackið sem ég fæ er að ég eigi að hætta þessu væli og það öfundar mig bara af því að fá svona gómsætar kökur.


Nei, það er víst ekki svo að manni sé vorkennt fyrir lúxusvandamálin.
Segi ég og skrifa meðan ég japla á nýbakaðri, volgri skúffuköku með súkkulaði og kókosmjöl ontop. Erfitt líf, hm?

Natti - pencil 13:29:35 - pencil permalink -

Saturday, 02.05.09

Litla fólkið

Áhugaverð umræða í gær milli Völu og fimm ára snáða í gær snérist að hluta til um hvort tígrisdýr borða menn og svona, og þróaðist svona:
A: En hvað borða mannætur?
V: Nú, þær borða menn.
A: Ó, ok. En ekki konur?

Hann myndi eflaust sóma sér vel í einhverri politically correct taldeild femínistaráðs íslands...

Natti - pencil 11:36:40 - pencil permalink -

Saturday, 25.04.09

matval(kvíði)

Á nokkurra ára fresti tek ég þátt í svona heimiliskosningu. Og þá er kosið um hvað skal borða næstu fjögur árin. Þar af leiðandi eru kosningarnar haldnar á fjögurra ára fresti, en nú er undantekning þar á, bara tvö ár síðan ég kaus síðast.

Allaveganna, þetta var erfiðara en að pína ofan í sig goða-pylsu afþví að pylsusalinn er hættur að díla við SS.

Valmöguleikarnir voru ekkert sérstaklega góðir, vondir bara, allir saman. Hvernig getur maður valið hvað maður ætlar að borða næstu fjögur árin ef að allt á matseðlinum er annaðhvort úrelt, ónýtt, myglað eða bara vont?

Einn kosturinn sem ég gat kosið var að fá að velja matinn minn alveg sjálfur, og passað yrði upp á að maturinn yrði ekkert of dýr og að ég gæti valið úr ótalmörgum tegendum, innlendum sem erlendum. Hreindýrasteik, kengúrusteik, krókodílakjöt, nýsjálenskt naut, you name it. Þeir sem standa fyrir þessu boði eru samt búnir að vera of uppteknir í stórveislum fyrir sjálfa sig síðustu ár, að þeir gleymdu alveg að fylgjast með matnum og lögðu eldhúsið í rúst. Og nú þarf ég að borga fyrir viðgerð á eldhúsinu þó ég hafi hvergi komið þar nálægt. En þessir sömu menn vilja samt ekkert kannast við að vera ábyrgir fyrir neinu. Get ómögulega kosið þá aftur.

Næsti kostur var að borða fisk alla daga vikunnar, soðinn 6 daga og ofnbakaður á sunnudögum.
Sögur foreldra og eldra fólks af þessháttar tíð heillar mig engan veginn. Ekki fer atkvæðið þangað.

Þar á eftir gæti ég valið að borða bara íslenskt grænmeti og mjólk, og einstaka lambakjöt. Og passað yrði upp á að banna innflutning á erlendu grænmeti og matvörum, og íslensku vörunar hækkaðar upp úr öllu valdi. Finnst þetta ekkert sérstalega framsækið, jafnvel þótt ég fengi pylsyr í öll mál.

Svo get ég valið að kjósa hóp af fólki sem er með leiðbeinandi stefnu sem segir "mat á diskinn". En ekkert meir, segja ekkert hvernig mat, hvernig hann er eldaður eða hvaðan hann fæst. En hljómar samt eins og allur matur skuli vera búinn til innan borgarmarkanna. Skil þetta ekki alveg, virðist heldur enginn vera sammála, engin samstaða einhvernveginn, bara hópur af stórskrýtnu fólki sem þvær sér örugglega ekki um hendurnar.

Svo gat ég valið hóp, þar sem yfirkokkurinn hefur mætt í dómssal útataður í tómatssósu frá toppi til táar, og reyndi svo að sóða aðra út líka. Hann vildi ekkert segja heldur um matargerðina annað en að honum fannst smökkunarhornið sitt ekki fá nógu mikla athygli. Ég er ekki að fara að treysta manni sem getur ekki farið með tómatsósu til að elda fyrir mig.

Hvað var svo?
Já, svo var hópur af fólki, sem hafði verið minni hópar af öðru fólki, sem hafði sameinast ennþá minni hópum af öðru fólki. Þetta var einsog stofnun þar sem engin samskipti eiga sér stað, á meðan einn sagði eitt kynnti næsti einstaklingur eitthvað annað. Sumir sögðu meiraðsegja sitthvoran hlutinn í sömu málsgreininni. Sögðust bæði ætla að elda fisk og kjöt, en bara annaðhvort, eða bæði, samt ekki hitt. Átta mig ekki á hvernig þetta endaði.
Þau virtust þó eiginlega öll vera sammála um eitt, þrátt fyrir matseðilinn sögðu þau að þau myndu ekki velja matinn, heldur myndu þau finna einhvern stærri hóp í útlandinu, sem væri myndaður af mörgum öðrum hópum, til þess að velja matinn okkar.
En það veit samt ekki alveg hvernig það ætlar að borga fyrir matinn.
Ekki get ég valið þessa flækju, né treyst því að einhver gaur í útlandinu viti hvað ég vilji borða hverju sinni.

Síðasti valmöguleikinn var áhugaðverður.
Það var að í staðinn fyrir að ég gæti nálgast mjólkina útum allt, þá yrði það fært í fyrra horf, þar sem bara ákveðnir aðilar mega selja mjólk. Þessi hópur var líka mjög á þeirri skoðun að þeir vildu ákveða hvað allir borða, fólk á allsekki að velja matinn sinn sjálft, enga er því ekki treystandi til þess. Hver og einn fær bara eina skeið af sykri, enda er allt meira en ein skeið óhollt. Og ég á helst að rækta papríkuna mína sjálfur, en ekki of margar samt, því þá verð ég að gefa þær nágranna mínum sem nennti ekki að sá áburði og fékk enga uppskeru. Og það er alveg bannað að með hugmyndir að því hvernig mætti rækta papríkur í stærra upplagi á hagkvæmari hátt, ég hélt ég yrði borinn út þegar ég spurði út í þetta. Og svo telja þau alveg fáránlegt að nota eldavél til að hita upp matinn, þetta verður allt gert yfir kertaljósi.
Ég ákvað að spyrja ekkert meira þegar ég sá að bakvið hópinn hékk andlitsmynd af manni sem að drap alla sem voru ósammála honum. Engin furða að þeir sem stóðu eftir lifandi kölluðu hann "frelsishetju" þótt hann takmarkaði líf þeirra óendanlega. Betra að lifa í búri en að vera skotinn í hausinn.
Ég set atkvæðið ekki þangað heldur, en ekki segja þeim, ef þeir komast áfram verður maturinn minn eflaust eitraður.

Ég get ekki séð að neitt af þessu vilji ég borða næstu fjögur árin, og ég get ekki séð að mtt akvæði skipti nokkru máli heldur. Ef ég þarf að éta skít í fjögur ár þá skiptir engu máli hvort að það heitir drulla á íslensku eða að ég láti útlendinga segja mér að eat-shit. Kemur út á eitt.

Ég skilaði því bara auðum seðli, og hafði engin áhrif á gang mála. Ég vona bara að það verði búið að skipta út gömlu kokkunum fyrir nýja, og búið að gera betri matseðil fyrir næstu kosningar.

Natti - pencil 17:47:40 - pencil permalink -

Newer articles:

12.08.2009

20.07.2009

31.05.2009

21.05.2009

Older articles:

22.04.2009

16.04.2009

06.04.2009

24.03.2009

15.03.2009