Wednesday, 22.04.09

Gleðilegt sumar, bless vor eða vetur?

BlómÁ morgun, 23 apríl, er sumardagurinn fyrsti.
Þá er nú ýmislegt að gerast. Kannski minni þáttaka vegna veðurs, en whatever.
Í dag, 22 apríl, er þá síðasti vetrardagur.

Hvenær er þá vorið?
Það vantar eitthvað upp á þessa jöfnu.

Skiptir kannski engu máli fyrst það er rigning allt árið um kring, og stundum haglél í júlí.

Ég fór á xhvad.is til að athuga hvað ég ætti að kjósa.
Niðurstöðurnar komu ekki á óvart, enda veit ég svosem alveg hvar ég stend hugmyndafræðilega séð. Eða svona nokkurnveginn.
Vandamálið er að ég treysti ekki fólki sem er í framboði.

Ef ég horfi á "hina" flokkana, þá hvorki er ég sammála hugmyndafræðinni, né treysti því fólki heldur. Ætli ég verði ekki að nota útlokunaraðferðina.

Natti - pencil 13:09:22 - pencil permalink -

Thursday, 16.04.09

Simple Minds

Ég hef ekki verið mikill leikjaunnandi í gegnum tíðina.
En get orðið hooked á einföldum leikjum. Svona eins og bubble trouble, eða minesweeper, hearts, freecell. Bílaleikir og svona geta líka vakið áhuga minn í smá tíma. Eða skrýtnir leikir með pappírdýrum.
Vala fann nýjan leik handa mér í vikunni, svona í tilefni þess að ég er að fara að eiga afmæli.
(Hún fann reyndar leikinn fyrir sig, en ég "stal" víst leiknum af henni...)
Gravity Master heitir leikurinn, addictive og einfaldur, það er það sem hann er.
Mæli eindregið með að þið prufið.
http://www.onemorelevel.com/game/gravity_master

Gravity
Svona er nú það.
 
Bætt við: ef þú ýtir á "more" tengilinn, þá sérðu scorið mitt :)

[read more]

Natti - pencil 19:37:11 - pencil permalink -

Monday, 06.04.09

The Butterfly Effect

Bleik fiðrildiÍ gærkveldi sátum við Vala inn í stofu. Hún að horfa á sjónvarpsskjá og ég á tölvuskjá.
Hún var eitthvað að leika sér með litla límmiða líka, svona blóm, fiðrildi og fleira, og límdi allskonar skraut á puttana á sér.
Þegar hún var komin með nógu mikið skraut að lítill blómaálfur hefði getað gert sér heimili þar, bað hún um að fá að setja einn límmiða á minn putta.
Það var samt eiginlega ekki spurning, þið vitið hvernig þetta er.
Ég hugsaði með mér, whatever, myndi bara taka límmiðan af mér fyrir svefninn.
Vala límdi fallegt bleikt fiðrildi á nöglina á baugfingri á vinstri hönd.
Það tók mig umþaðbil 0.5 sec að gleyma að ég væri með SKÆRBLEIKT fiðrildi á puttanum.
Fiðrildið datt ekki af í svefni.
Fiðrildið fór ekki af í sturtu í morgun.
Og hvað gera strákar við neglurnar sínar á morgnana? Ekki neitt, akkurat ekki neitt. Lítum ekki einusinni á þær. Why bother?
Þannig að hvað? Já, þannig að ég fer þá bara með bleikt fiðrildi á baugfingri í vinnuna.
Undir venjulegum kringumstæðum hefði það verið í lagi, fullt af vinnufélögum sem hefðu strítt mér á þessu, jafnvel einn eða tveir viðskiptavinir sem ég þekki hefðu ekki hikað við að stríða mér smá.

En hvað gerist? Allir samstarfsmenn mínir eru útí bæ, og enginn í vinnunni sér þetta til að stríða mér. (Og þá hefði ég getað tekið fiðrildið af mér.)
En neii, strax um morguninn er ég sendur niðrí heilsugæslu, hef aldrei farið þangað áður. Hitti það viðskiptavin sem að ég hef ekki hitt áður.
Miðað við glottið á honum, þá tók hann eflaust eftir þessu, en sagði auðvitað ekki neitt.
Ég bíð bara eftir að hann verði einhverntímann spurður út í vinnuna, og hann á eftir að svara að gaurinn með bleika fiðrildið á nöglinni hafi komið...

Það er ekki lítið lagt á mann suma dagana...

Natti - pencil 22:35:35 - pencil permalink -

Tuesday, 24.03.09

9 mánuðir til Jóla

HjóliðOg styttist í sumarið líka.
Fór um helgina, og aftur í dag, á súkkuna.
Wr00maði milli póstnúmera.
Shiii hvað það var samt gaaaman.
Smá kalt reyndar.

En þá styttist bara í sumardaginn fyrsta, og svo fyrsta maí.
Sem minnir mig á.
Nú eru alveg að koma páskar og afmæli.



How about that?

Natti - pencil 20:45:16 - pencil permalink -

Sunday, 15.03.09

Work and play

1. "There's time for work and there's time for play"
2. "Whose who say that there's time for work and there's time for play rarely find time to play"

1. Even the busiest of people are never too busy to tell you how busy they are.



Ég á að vera að gera eitthvað allt annað en þetta, svo mikið er víst.
Snjór úti... sund á eftir... mm... sund. Followed by matur. En ekkert bíó.
Natti - pencil 15:44:29 - pencil permalink -

Newer articles:

10.05.2009

03.05.2009

02.05.2009

25.04.2009

Older articles:

15.03.2009

13.03.2009

07.03.2009

23.02.2009

16.01.2009