Monday, 22.12.08

Friend or Foe?

Natti SnjókallCatching up, ketchup.
Einmitt það sem ég er búinn að vera að gera.
Hádegismatur með Magga í síðustu viku. Hádegismatur með Gunna á morgun. Og svo rifjuðum við upp old times á kofanum í gær, ég, Egill, Hjörtur og Birkir (ásamt mis-íslensku-fylgdarliði.)
Good times. Gera þetta oftar. Allt saman, líka borða hádegismat.

Ég á eftir eina jólagjöf, so to speak. Á eftir tvær hálfar, samanlagt eina. Held ég nái að klára báðar í kvöld. Vonandi.

Ég var með fullt af góðum hugmyndum áðan, en nú er ég bara með ritstíflu. Crap.
En góð mynd af mér og snjómann. Hann fór sömuleið og Snæfinnur, bráðnaði, eða rigndi niður.

Natti - pencil 17:32:29 - pencil permalink -

Monday, 15.12.08

Afhverju ég?

Hvað er búið að vera að gerast hjá mér undanfarið?
Bara rólegt er það ekki?
Neinei.

Þetta byrjaði með því að síminn minn hætti að sýna mér delivery reports, þannig að s.l. mánuð og rúmlega það hef ég ekki vitað hvort að sms komast til skila eða ekki.
Og svo í byrjun des / lok nóv (held ég), þá er síminn minn hættur að taka á móti sms-um. Nema stundum þegar ég endurræsi símann þá fæ ég sms. Verst er að allir sem að senda mér sms fá "delivered" (ef að viðkomandi notar delivery reports). En ég fæ aldrei smsið.
Er búinn að fá nokkrar kvartanir þess efnis að ég hafi ekki svarað smsum. Vona bara að aðrir sem hafa sent sms og ég ekki svarað sjái þetta og fyrirgefi. :)

Sjaldan er ein báran stök (nema þetta sé lag eftir Sverri Stormsker, og þá væri notað stórt B, og lægið væri eflaust um Báru Barmamikla).

Á fimmtudagskvöld stíflaðist eitthvað niðurfall úti á götu. Ok attlæ. Verst að það er somehow tengt við eitthvað niðurfall í einni geymslunni á Hverfisgötunni. Þannig að það þurfti að hringja til slökkvulið til að dæla circa 10cm háu stöðulóni af geymslugólfinu niðrí kjallara.
Pappírar og e-ð tölvudót líklegast ónýtt hjá mér...

Oh what the heck, getur varla versnað. Right? Wrong!

Kem heim á miðnætti á fimmtudagskvöld.
Legg bílnum passlega langt frá húsinu (skortur á stæðum) og fer inn að hátta mig.
Heyri í bílflautu á fullu, e-ð þjófavarnakerfi í gangi. Fæ svona "hey, ætli þetta  sé minn bíll" óþægilega tilfinningu. Þannig að ég hoppa út á nærbuxunum að sjá, og viti menn, í fjarska blikkar bíll sem er á svipuðum stað og ég lagði mínum.
Ég hoppa því inn í buxur og bol og fer að bílnum, allt í gúddí, ekkert innbrot.
Fer og legg honum nær húsinu (fann annað stæði). Fer inn, og þjófavörnin í gang.
Og nú er fjarstýringin (læsingin á lyklakippunni) hætt að virka.
Nóttin var samt ok.
Morguninn líka, þar til bíllinn byrjaði að setja þjófavörnina á þegar ég var kominn í vinnuna.
Og bíllinn var búinn að taka sig úr lás.
Og svo hætti fjarstýringin/læsingin að virka.
Og svo hætti samlæsingin að virka.
Og svo hætti rúðupissið að virka.
Og svo hættu rúðuþurrkurnar að virka, nema á hæstu stillingu.
Og stefnuljósin hættu að virka, en hazardljósin virkuðu.
Og svo hættu háuljósin að virka, og ég gat ekki lengur átt við stillingarnar á framljósunum.
Og svo hætti afturrúðuhitarinn að virka.

Mig vantar knús, anyone? Með 64kr afslætti og allt.

Natti - pencil 10:20:25 - pencil permalink -

Sunday, 16.11.08

Sleikjur

Þegar ég var lítill (og aðeins eldri) fannst mér obbó gaman að hjálpa mömmu við að baka.
Já og ömmu líka.

Jafnvel þó að ég gæti ekki gert mikið til að aðstoða, þá þurfti einhver að passa upp á að ekkert súkkulaði færi til spillis.
Öll áhöld og ílát þurftu að vera sleikt áðuren þau færu í vaskinn.
Því ef maður var ekki með hugann við verkinn, var skálinni og sleifinni bara skutlað í vaskinn og skolað.
Stundum þoldi ég ekki hvað mamma þurfti að skafa mikið innanúr skálinni þegar hún var að hella í form. Mér fannst það algjör óþarfi að vera svona smámunasöm, það mætti alveg skilja eftir smá meira súkkulaði fyrir mig til að sleikja.

Ég var alveg viss um að þegar ég yrði eldri, þá gæti sko enginn stoppað mig í þessum efnum.
Boy was I wrong.

Vala er nefninlega búin að vera passlega dugleg við að baka undanfarið... en fæ ég að sleikja [innihald skálarinnar] óónei!
Jafnvel þó að það sé nóg súkkulaði eftir í skálinni og sleifinni. Og þó að ég standi þarna við vaskinn (að vaska upp) og reyni að passa upp á að súkkulaðið fari ekki til spillis, þá er Vala ótrúlega góð í að skutla skálum og sleikjum með súkkulaði framhjá mér og beint undir bununa í vaskinum.
Það er náttúrulega ekki manni bjóðandi að maður þurfi að stelast til að sleikja súkkulaði sem er á leiðinni í vaskinn...
Ekki að ég hafi eitthvað efni á að fitna neitt...

On a side note, þá er það víst ekki sniðugt að tala um þetta in public. Fólk sem að á leið hjá og heyrir hluta af sögunni setur upp svipi og gefur manni hornauga þegar það heyrir "og svo leyfir hún manni aldrei að sleikja."

Natti - pencil 19:32:43 - pencil permalink -

Monday, 10.11.08

Litlifingur, litlifingur, hvar ert þú?

Hér er ég, hér er ég. Góðan daginn, daginn daginn!

Er að týnast í draslinu mínu, hef ekki fundið mig aftur.

En svona, hvað hefur á daga mína drifið?

Ég er farinn að borða hafragraut í morgunmat 3 sinnum í viku.
Kvöldmaturinn er svona semi-hollur. En amk oftar heimaeldaður...
Ég vildi óska þess að ég gæti sagt að ég ætti þar hlut að máli. En tilraunir mínar til þess að skera niður grænmeti eða einfalda hluti eins og að rista brauð eru líkleg til þess að skila sér í símtali í 112...
Þannig að ég sé þá bara um að vaska upp í staðinn, en fæ æðislegan mat.
Ég var t.d. að vinna á fimmtudagskvöldið og Vala eldaði mat heima og kom með upp í vinnu handa mér. Svona Wok-Kjöt réttur í ostrusósu ef ég man rétt. Var æðipæði.

Að öðru, þá er ég fluttur búferlum og bý í pappakassa og íþróttatösku. Tveir piltar sjá um að varðveita íbúðina mína í smá tíma, svona yfir versta krepputímabilið amk.

Það styttist í að ég komist í bloggstuð aftur. Er e-ð tengt því að ég er ekki mikið í tölvunni á kvöldin...

Natti - pencil 20:35:26 - pencil permalink -

Monday, 03.11.08

Surprise

Skv frétt á mbl þá hafa fyrirtæki, innlend sem erlend, "eytt" töluverðum fjárhæðum í að veðja á að krónan myndi veikjast.
Eitt sem að er athyglistvert við þessa pælingu, er að síðustu 2 ár eða svo hafa erlend greiningarfyrirtæki og bankastofnanir bent á að bankarnir okkar og fjármálakerfið myndi allt fara í klessu og að íslenska krónan myndi brotlenda allharkalega ef að þetta myndi halda svona áfram.
Íslendingar, með forsvarsmenn bankanna og Seðlabankastjóra í broddi fylkingar svöruðu þessum aðilum fullum hálsi. Þ.e.a.s. að þeir þekktu ekki séríslenskt efnahagslíf og höfðu þar af leiðandi ekki hugmynd um hvað þeir væru að tala um. Jafnvel var hótað lögsóknum þegar erlendir aðilar væru að setja út á bankana okkar. Þetta væri allt samsæri gegn íslendingum, bara öfundsýki hjá hinum bönkunum.
Verst að það kom svo á daginn að þessir aðilar höfðu barasta rétt fyrir sér.

Nema hvað, miðað við þessar forsendur, ef að það var svona augljós fyrir öllum í heiminum (utan íslendinga) að þessi stefna okkar myndi leiða til brotlendingu krónunnar. Kemur þá eitthvað á óvart að það væru til einstaklingar og fyrirtæki sem væru tilbúin að veðja töluverðum upphæðum á að krónan myndi veikjast.

Í einhverjum tilfellum er þetta kannski brask þar sem er verið svo að reyna að hafa áhrif á krónunna. En getur ekki verið að í einhverjum tilfellum hafi viðkomandi aðilar bara trúað að þetta myndi fara svona, því það benti allt til þess. Rétt eins og það bendir allt til þess að þegar flugvél í háloftunum hlítur að hrapa þegar hún verður bensínlaus. Jafnvel þótt að flugstjórinn segi að bensínið klárist aldrei og það þurfi samt ekki að fylla á.



Og skv þessari frétt á Vísi, þá ætlar Skipti og dótturfélög (Síminn og Míla) að lækka laun starfsmanna um 10% (fyrir þá sem eru með hærri laun en 350þús). Og segir ennfremur að engar uppsagnir verða "þessi mánaðarmót".
Kannski verða uppsagnir næstu mánaðarmót á þeim starfsmönnum sem að vilja ekki taka á sig 10% launalækkun?

Engu að síður, þá er það fyrsta sem að mér datt í hug þegar ég las þetta að um væri að ræða ónauðsynlega aðgerð. En ég hef ekkert fyrir mér í þeim efnum samt, hef ekki kynnt mér stöðuna til hlítar. (Nema að 6 mánaða uppgjör lofaði mjög góðu...)
Eitthvað hefur verið rætt um að sum fyrirtæki myndu nýta sér aðstöðuna í þjóðfélaginu og minnka launakostnað. Upp að ákveðnu marki er það kannski hollt fyrir samfélagið að lækka aðeins laun þeirra sem eru hærra launaðir. Verst að það er gert samt á sama tíma og útgjöld eru að aukast.
En það eru sum fyrirtæki sem verð að gera þetta til að lifa af. Önnur sjá sér svo tækifæri í að auka gróða handa hluthöfum (sem eru kannski í fjárhagsvandamálum) með því að lækka launakostnaðinn. Það er spurning í hvorum hópnum fyrirtækið sé.
Natti - pencil 10:10:06 - pencil permalink -

Newer articles:

15.03.2009

13.03.2009

07.03.2009

23.02.2009

16.01.2009

Older articles:

16.10.2008

15.10.2008

09.10.2008

07.10.2008

04.10.2008