Friday, 19.09.08
Status Update
Þetta eru samt bara tölur, þarf að ná mér í eitthvað af þessum vöðvum til baka án þess að fitan komi með.
Sjálfvirka hurðin í WC vildi samt ekki opnast fyrir mér. Sem að minnti mig á "How to tell when you're dead; #9: Automatic doors don't open"
-
Þetta með kílóin gætu haft eitthvað með mataræðið að gera...
En síðustu misseri hef ég verið að borða kjötsúpu, lúðu, ýsu, KJÚKLING, silung og annað góðgæti. Og hef actually borðað morgunmat af og til.
Betri helmingurinn hefur séð um eldamennskuna, því ekki er hægt að ætlast til að einstaklingur sem á hvorki ofn, né getur gert pönnukökur, kunni að elda.
En ég kvarta ekki, mjög góður matur sem að ég er að fá.
Ég sé stundum um uppvaskið í staðinn bara.
Já, ég s.s. borðaði kjúkling í gærkvöldi, þá í 3 skiptið s.l. rúm 10-12 ár eða svo. Tókst töluvert betur í gær helduren síðast. Ekki alveg sjálfgefið, en með nokkrum skiptum í viðbót held ég að ég geti alveg farið að borða tjúttlíng.
En svona til að halda jafnvægi í lífinu, þá bakar Vala líka... og fór ég með köku í vinnuna í fyrradag. Mér tókst ekki að sannfæra samstarfsfólk mitt um að ég hefði bakað. Ekki mikið traust lagt á mig í þessari deildinni. Enda þótti kakan bragðast mjög vel.
-
HVURN DJÖFULINN eru hundar að gera labbandi um íbúðarhverfi einir síns liðs kl 01:00 á nóttunni.
Sjálfvirka vekjaraklukkan/dyrabjallan (lesist: hundurinn sem er á heimilinu) er ekkert ánægður með að það sé annar hundur hinumegin við gluggann. Og það er ekkert hægt að sofa fyrir gelti og urri. Urrr!
Monday, 01.09.08
Góðverk
Nú var verið að ráða nýjan starfsmann, sem vildi svo til að var frá Keflavík. Og auðvitað þurftu aðrir Keflvíkingar á svæðinu að benda á það.
Hvað get ég sagt, það hafa verið ófá skotin sem hafa komið frá mér (og öðrum) varðandi hvaðan þeir eru...
Nema hvað, að framkvæmdarstjórinn (stýran?) okkar svaraði póstinum með því að benda á að fólk væri ekki ráðið inn í þetta fyrirtæki nema að uppfylla annað eða bæði af eftirfarandi tveim skilyrðum:
1. Hafa unnið í tæknival
2. Vera frá Keflavík.
En tók þó fram tvær undantekningar á þessari meginreglu að ráða tvo Hafnfirðinga, enda sé það alltaf gott.
Ekki get ég sagt að ég hafi verið sáttur við þennan póst. Enda hvorki Hafnfirðingur, Keflvíkingur né fyrrverandi Tæknivalsstarfsmaður. (Kannski að fyrirtækið mitt sé í einhversskonar samfélagsþjónustu og bæjarfélögin borgi með fólkinu, og svo vorkenna auðvitað allir fyrrverandi Tæknivalsstarfsfólki...)
Ég svaraði því póstinum með orðunum "Og hvað gerði ég þá af mér?"
Gáfulegt....
Nei.
Þarna opnaði ég flóðgátt þar sem að mér voru launuð öll skotin.
Eftir nokkra pósta frá samstarfsfólki mínu með mis-hnyttin skot til baka ákvað framkvæmdarstjórinn (stýran?) að leiðrétta þetta bara.
Og svaraði á þá leið öll fyrirtæki ættu að hafa einn Jólatan í vinnu.
Enda hafði hún frétt af jólaundirbúningnum mínum áðuren ég var ráðinn, sem hefði augljóslega tryggt starfið mitt.
Jæja, ég veit þó hver verður látinn skreyta í ár....
Að öðru... komin ein ný klósettfærsla á www.bitur.is, og önnur á leiðinni á morgun eða hinn.
Uuuuu.....ndirhaka?


Eigum við að ræða bollukinnar? Jiii... Fyrri myndin er frá því í fyrra eða hittífyrra... Seinni myndin er frá því í gær.
Kannski ekki alveg besta myndin sem ég hef tekið af mér. En well. Var eitthvað að leika mér aðeins.
Tími til að fara að taka sig aðeins á í ræktinni, hm?
Wednesday, 27.08.08
E
En yfir ævina held ég að ég sé búinn að ná upp í 5 skipti, svona í heildina.
Ekki get ég sagts hafa verið menningarlegur á þessu sviði.
En er þá ekki ánægjulegt að eiga svona dásamlega kærustu sem fannst þurfa að bæta úr þessu.
Ekki ætlar hún að senda mig á eina sýningu, heldur átta.
Ekki nema átta sýningar á næstu níu mánuðum.
Enda búið að panta og borga þær allar.
Endalaus ánægja með það bara, enda ekki annað hægt.
Eflaust verður þetta bara ágætis skemmtun, en flest leikritin eru svona happy happy nema eitt.
Eiginlega er ekki annað hægt með svona góðan félagsskap.
Ei datt mér í hug að allar setningar myndu byrja á "e", er ég byrjaði á þessum pistli.
Tuesday, 19.08.08
Tapsár
Ég er búinn að vera að pæla aðeins í þegar fólk er tapsárt og svona.
Nú er til fólk sem að er tapsárt, og fólk sem að bara kann ekki að tapa.
Við fyrstu sýn virðist þetta vera sami hluturinn, en hérna er stór munur á.
Og algengt er að fólk rugli þessum tveimur týpum saman.
Við vitum öll hvernig tapsárt fólk er. Það er... tapsárt.
En svo er fólkið sem kann ekki að tapa. Og fyrir því geta verið margar ástæður. Helsta ástæðan er eflaust reynsluleysi.
Nú þekki ég t.d. stelpu sem að sumir myndu segja að væri alveg afskaplega tapsár einstaklingur.
Henni finnst hún ekki vera það, enda tapar hún aldrei.
Frá hennar sjónarhorni, það "að tapa" er eitthvað sem að gerist bara fyrir annað fólk.
Og fyrst hún tapar aldrei, þá hefur hún bara enga reynslu í að tapa, og sökum reynsluleysis þá bara kann hún ekki að tapa. Sem að er allt annar hlutur en að vera tapsár. Og þar af leiðandi er alveg skiljanlegt að hún verði móðguð þegar fólk segir hana vera tapsára. Bara fordómar og skilningsleysi í öðru fólki. Kannski bara fólki sem að er sjálft tapsárt.
Ég tildæmis kann alveg að tapa, enda vel sjóaður í því, en stundum er ég tapsár.
Talandi um að tapa... spurning hvernig leikurinn fari í fyrramálið...
Newer articles:
16.10.2008
15.10.2008
09.10.2008
07.10.2008
04.10.2008
Older articles:
06.08.2008
25.07.2008
23.07.2008
10.07.2008
08.07.2008
11:07:35 -





