Wednesday, 06.08.08

Beauty is in the eye of the beholder

Fyrir 6 árum síðan fannst mér ég vera alltof feitur.
Fór í ræktina, einkaþjálfun og læti, ásamt Mikkó. Gerðum okkur að fíflum með því að prufa að mæta í einhvern eróbikk tíma eða e-ð álíka. Svona hoppi skoppi dans í allar áttir, og við svona 5 hreyfingum eftirá alltaf.
Síðan eftir þetta byrjaði ég í sambandi og fitnaði heilan helling. Jedúddamía.
Þetta er svona hægt og sígandi að komast í burt aftur.
Eftir svona skorpulíkamsrækt og breytt mataræði, að þó ég eigi langt í land, þá frá áramótunum 2006-2007 og þangað til núna er ég búinn að léttast um rúm 20kg, þar af hafa 6-7kg farið bara frá því í feb/mars á þessu ári.

En óháð kílóatölu, þá er víst ennþá dulítið í land í að ég komist í almennilegt "form".
Ætla s.s. ekki að enda eins og þríhyrningur, eða hringur.
Þetta er komið í farveg, þó ég geti víst ekkert reynt á mig fyrr en viðbeinið lagast alveg.

Vegna verðbólgu hafa knús með 64kr afslætti verið minnkuð niður í 32kr afslátt.


En já, vildi bara tjá mig eitthvað. More to come á næstu dögum þegar rútínan byrjar. :)

Natti - pencil 15:21:20 - pencil permalink -

Friday, 25.07.08

Kurteisir glæpamenn (og konur)

Mér finnst alltaf gaman að sjá kurteist glæpahyski.
Svona eins og þegar fólk gefur stefnuljós áðuren það beygir til vinstri þar sem það má ekki eða ekur á móti einstefnu.

Alveg eins og innbrotsþjófar sem 'starfa' á daginn eða þegar enginn er heima. Ekki einsog þegar ræningjar reyna að brjótast inn þegar fólk er sofandi eða dinglar bjöllu um miðja nótt til að athuga hvort einhver sé heima. Dónaskapur að vekja fólk af værum blundi. Held það sé ekkert þægilegt að vakna við að einhver er að róta í náttborðinu.

Eða starfsfólk KB banka (kaupþing/búnaðarbankinn/ KB Byr/whatever sem þetta heitir nú) í kringlunni. Pínu ágengt að vísu, en þarna má sjá að skipulögð glæpastarfssemi er oft kurteis.
Sama verður ekki sagt um skattstjóra. Enda er varla hægt að tala um skipulag á stofnun sem tekur sér ársfjórðung í að leiðrétta sín eigin mistök. Og rukkar mann svo aftur um þau seinna bara til þess að endurgreiða hálfu ári eftir það, án vaxta.

Ertu með facebook?




Natti - pencil 19:22:29 - pencil permalink -

Thursday, 24.07.08

andvaka

Áðuren ég byrja vil ég biðja ökumanninn(konuna/stelpuna) á MG456 (minnir mig(?)) að vinsamlegast einbeita sér að akstrinum. Ef lestur dagblaða meðan þú ert á ferðinni er svona nauðsynlegt, takstu strætó eða leigubíl eða fáðu þér einkabílstjóra.


Og svona smá update frá sjálfummér
Viðbeinsbrotið er svona farið að lagast. Er ekki alslæmur ennþá. Fór í útilegu þarsíðustu helgi. Tók smá á við tjöldun og pökkun, en ekkert sem var ekki þess virði. :)
Á svo tíma hjá bæklunarlækni og mögulega lögfræðingi vegna málsins.

Talandi um sjálfan mig. Nú hef ég verið samferðamaður minn í rúm 26 ár (wow, feeling old).
Ég myndi halda að ef að ég myndi eyða 26 árum með einhverjum einstakling að ég ætti að þekkja viðkomandi þokkalega vel. Ég held ég eigi alveg eftir að kynnast mér samt.
Ameríkanar fara til evrópu til að "finna sig", hvert förum við?


Jæja, klukkan orðin 6, ég búinn að vera andvaka frá því kl 5...
Sólin er ekki beint að hjálpa til við svefninn.
Alltof heitt líka, tekst ekki einusinni að balanca hita/kulda með því að stinga öðrum fætinum undan sænginni.
En ég er svo viss um að þegar sá tími kemur að ég þarf að fara á fætur og "vakna", að þá fyrst á ég eftir að verða dauðþreyttur og eiga erfitt með að halda mér vakandi.
"Nothing cures insomnia like the realization that it's time to get up"

Svona þreyta gerir það líka að verkum að maður hlær að lélegum 5aurabröndurum (eru til góðir svoleiðis) og hugmyndium eins og að egg séu í eggstream danger...

En já, nýr dagur framundan.
Og einsog einhver sagði... ekki gera þinn slæma dag að mínum slæma degi.

Bætt við:
Klukkan er rétt rúmlega hálf níu.
Venjulega er ég að reyna að vakna á þessum tíma, og reyna að fá mig að koma mér í vinnuna. Er ekki alveg morgunmanneskjan.
Núna er ég í fríi og get sofið út.
Eða öllu heldur, ég er í fríi, en get ekki sofið út. FLE (Ekki Félag Löggiltra Endurskoðenda)

Natti - pencil 06:30:39 - pencil permalink -

Thursday, 10.07.08

Horatio

Við...
Horatio CSI Miami Kitchen
elskum hann öll... *setur upp sólgleraugun*

Natti - pencil 12:03:46 - pencil permalink -

Tuesday, 08.07.08

Just the tip of the iceberg.

Ég veit ekki hver á þetta sumar.
En þetta er ekki sumarið mitt.

Ég pantaði miða í herjólf, voða slakur, og geri svo það sem ég geri best, byrja að fresta.
Fresta því að borga miðana.
Mundi eftir því í gærmorgun þegar ég hringdi niðureftir og komst að því að, úbbs, sorry, of seint, búið að selja alla ógreidda miða. Leiðinlegt.

Þannig að ekki lítur út fyrir að ég fari á þjóðhátíð í ár.
Æði.

Sársaukinn í viðbeininu er búinn að breytast, og núna virðist það vera aftur eins og það var áðuren því var snúið.
Er skíthræddur um að það hafi... uh...somehow farið í mess aftur, eða þá að sjúkraþjálfinn hafi ekki komið því "rétt" fyrir þegar hann braut mig.
Great.
Hvað á ég að gera núna? amk ekki fara til sjúkraþjálfara. Panta tíma hjá bæklunarlækni sem á laust einhverntímann í seinnipart ágúst?
Og hvað gerist þá? allt gróið? þarft þá að brjóta mig aftur upp ef þetta er vitlaust?
Hjóla semsagt ekki mikið í sumar.

Hef alveg góðar fréttir líka, er mögulega með potential leigjendur næstu daga og í vetur.
Munar um það.
Natti - pencil 11:19:19 - pencil permalink -

Newer articles:

19.09.2008

01.09.2008

27.08.2008

19.08.2008

Older articles:

03.07.2008

30.06.2008

20.06.2008

13.06.2008