Friday, 04.04.08
One time only
Hlutir til að gera áðuren þú deyrð (eflaust það síðasta sem þú gerir...)
(sjá mynd 1.1)
Mynd 1.1 (Gæti tekið smá tíma að loadast)

Wednesday, 02.04.08
Wanted: Practical Jokes
Þegar eldra fólk fer að tala um hvað ungdómurinn fer versnandi, þá hefur yfirleitt verið hægt að minnast á að þegar fólk um 50 og eldra var ungt að þá voru bílaíkveikjur og veltur tíðari en núna.
Jah, þangað til fyrir viku síðan, þegar nokkrir bílar urðu eldsmatur.
En hvað með öll gömlu prakkarastrikin?
Núna er ekki mikið um að fólk búi í gömlum tréhúsum, þannig að sú aðgerð að verða sér úti um bómul, smá band og steinolíu til þess að hræða líftóruna út úr fólki sem hélt að húsið sitt væri draugsetið, er víst ekki að gera sig núna.
Myndi eflaust enginn kippa sig upp við einhver spooky aukahljóð í dag.
Í besta falli myndi einhver láta sér detta í hug að viftan í tölvunni eða græjunum eða sjónvarpinu eða eitthvað væri biluð.
Já eða, hvað varð um að setja saur inn í smá brot af dagblaði, setja við útidyrnar hjá einhverjum, kveikja í þessu og hringja svo bjöllunni?
Hérna einusinni var fólk amk ekkert að fara í skó áðuren það notaði fæturnar sínar til að slökkva í dagblaði sem var í logum við hurðarstafinn þeirra.
Jú, það er víst fyndið þegar viðkomandi áttar sig á hvað hann/hún var að stíga í.
Og þetta er bara toppurinn af ísjakanum.
Ótalmargir skemmtilegir hlutir til að gera (oftar en ekki á kostnað annarra).
Hvað varð um alla svona skemmtilega practical jokes?
Var þessu bara skipt út fyrir PS2/PS3 og xbox eða?
Það þyrfti að koma þessu í nefnd og sjá til þess að auka fræðslu á svona hlutum á leikskólastigi og fyrstu bekkjum grunnskóla...
Svo ég vitni nú bara í mottóið hjá sumum einstaklingum innan þessa frábæra vinahóps sem ég hef...
"If it's more funny than sick, then it's ok."
Tuesday, 01.04.08
Attack of the doors
Ég hata, hata, hata, hata, hata, hata þessar sjálfvirku,sjálfhugsandi-renniopnihurðir sem að verslunarmiðstöðin í glæsibæ er með.
Síðast þegar ég fór þangað var ég næstum lokaður inni.
Núna var hurðin opin... og reyndi að loka á mig, kremja mig.
HÚN REYNDI AÐ DREPA MIG.
It all makes sense to me now afhverju "hurð" er kvenkyns...
Á leiðinni út var hurðin aftur opin, og ég tók tilhlaup þegar hún átti síst von á, og þóttist bara vera að flýta mér voðalega mikið út í bíl.
Annars er gaman að segja frá því að karlmenn eru víst yfirleitt ekki gjarnir á að tjá sig um þegar vinir eða vinnufélagar eru að grennast eða fitna.
Það er víst ekki nógu macho þegar karlmaður spyr annan karlmann hvort hann hafi grennst.
Því er um að gera að koma þessu "lúmskt" inn í einhverja aðra umræðu, rétt eins og átti sér stað hérna í vinnunni í morgun.
"Ok, og svo er spurning með WAAS [wide area application services] og hvernig sé best að implementa það með dmvpn [dynamic multipoint virtual private network] tengingunum. Djöfullinn, jónatan ertu að grennast? Og svo þarf bara að passa upp á EIGRP [Enhanced Interior Gateway Routing Protocol] þegar nýja core-ið og distribution boxin eru tengd að það hafi ekki áhrif á kerfin sem eru fyrir."
Kannski var þetta bara fyrsta apríl gabb, því þegar ég leit niður á bumbuna mína þá var hún ennþá þarna.
Fyrsti
Þetta er aprílgabb.
hahahahah
...
*sigh*
Monday, 31.03.08
Þegar stórt er spurt...
- Búa einn?
- Leigja herbergið aftur út?
Ég er með valkvíða.
Newer articles:
14.04.2008
09.04.2008
08.04.2008
06.04.2008
Older articles:
24.03.2008
23.03.2008
19.03.2008
16.03.2008
13:42:10 -





