Natti - Jónatan

» back

Er boðskapur í barnabókum? Og kemst hann til skila?

Pétur hittir Svart og BjartÉg lofaði Andra að lesa fyrir hann fyrir svefninn, ef hann myndi finna til bók.
Hann valdi bókina "Pétur hittir Svart og Bjart".
Á heimasíðu Bókasafns Kópavogs fellur þessi bók undir flokkinn "Bækur um einelti".

Ég veit að t.d. Grímsævintýri hafa ekki góðan "boðskap", en er önnur hver barnabók með fáránlegan boðskap?

Þessi bók, fjallar um að ný (svört) stelpa byrjar í bekknum hjá Pétri, og Pétur lendir svo í einelti af "Svart og Bjart".
Og boðskapur bókarinnar: Það er best að takast ekki á við einelti, og alls ekki segja fráþví, því það gerir illt verra.
Ný orð sem börn læra við lestur bókarinnar, "bleiknebbi", þegar Anna kallar Pétur það. (Annar er jú svört en Pétur "fölur")

Það vill semsagt enginn vera meðþeim sem að Svartur og Bjartur "taka fyrir" og verða því að "leika sér einir". Pétur er laminn, taskan hans tæmd og bókunum hans hent útum allt.
"Pétur sagði ekki neitt. Hann þorði það ekki."
Um kvöldið er svo Anna tekin og bundin við tré í almenningsgarði og skilin eftir.
Pétur heyrir grátinn inn um gluggann og fer út og nær að frelsa hana áður en Svartur og Bjartur koma aftur. Og fara þau í kjölfarið heim til Péturs og mamma hans spyr önnu: "'Hver hefur verið vondur við þig?' Hvorki Pétur né Anna svöruðu því. Þau vildu ekki klaga. Ekki vildu þau gera mál úr þessu í skólanum á morgun? [...] Þá hefðu Svartur og Bjartur aldrei látuð Pétur og Önnu í friði."

Bæði tónlistarefni og kvikmyndir eru skilgreindar eftir flokkum hvort efnið sé hæft börnum.
Er svona efni hæft börnum?

Nógu mörg eineltismál eru í gangi fyrir,að maður sé ekki að kenna börnunum að það eigi ekki að segja frá þeim.


Published at 12:51:40, Friday, 30.04.10

Comments?