I hurt myself today, to see if I still feel

Já, hef verið frekar slappur við að skrifa hérna undanfarið.
Búið að vera nóg að gera svosem, en það er kannski ekki allt sniðugt á prenti.
Aðgát skal höfð í nærveru sálar eða e-ð.
Svo er ég kannski líka bara búinn að vera að einbeita mér að því að hafa nóg að gera í staðinn fyrir að blogga.

En ég held ég verði blogglítill næstu daga áfram. Splunkuný ástæða.
Það er nefninlega þannig að hægri höndin mín er ekki mikið nothæf núna.
Einfaldir hlutir eins og að nota tölvumús getur verið mjög sársaukafullt.
Ég er semsagt að læra að nota vinstri þessa dagana, svona ásamt því að háma í mig parkódín forte og íbúfen.
Hnúinn á vinstri höndinn er samt álíka feitur/bólginn eins og ég væri svona 80kg þyngri...

Nenni svosem ekki að eyða meiri orðum í þetta, vont að vera í tölvunni, held að þessar 3 myndir ættu að útskýra nóg.
Crash
Crash
Crash

Og nei, glerið á hjálminum á ekki að vera svona beyglað by default.
Natti - clock 09:40:58 - Friday, 13.06.08 - pencil permalink