Muffins morðtilraunir

Veit ekki alveg með þessa kreppu...
Ef þig vantar mat... hóaðu þá bara í mig... við Vala elduðum kjötsúpu í dag í 12L potti...
(By "við", þá á ég við að ég fékk að skera niður grænmeti og lauk eftir því sem að Vala sagði mér...)
Það var kjötsúpa í gær... og í morgun... og áðan...
Speaking of, ef þig langar í góða kjötsúpu, þá mæli ég með kaffihúsinu Loki, sem að er efst á Lokastíg, ská á móti Hallgrímskirkju. Góður íslenskur matur þar...

Anyway, annað okkar hefur verið duglegt við að baka undanfarið. Annað okkar er ekki ég, ég vaska stundum upp.
Um daginn var annað okkar að gera Muffins, einhver ný uppskrift sem að hún fann á netinu.
En til þess að hún væri ekki alltaf að hlaupa fram í tölvuna til að skoða uppskriftina, þá skrifaði ég hana niður á miða, uppskriftina sko.
...
Eftir að miðinn var lesinn þá var kallað á mig, fullu nafni, og ekki boðar það nú gott.
Ég var á mjög kurteisan hátt spurður hvort ég væri að reyna að drepa annað okkar úr matareitrun...
Uppskriftin er hérna: (Þeir sem spotta hvað ég gerði vitlaust, og hvað á að vera í staðinn, mega koma og fá rolo-muffins sem var gert í dag (sem er awesome))
2.5 bollar hveiti
1.5 bolli sykur
1 tsk natrium
1 tsk salt
2 msk vanillusykur
3 egg
1 dós jógúrt
220 gr smjörlíki
150-200 gr saxað súkkulaði.

Sem betur fer var ekki farið eftir þessari uppskrift, og muffinsin bragðaðist mjög vel.

On a side note: Þá sá ég nokkur námskeið auglýst á síðnni hennar Unnar... Sérstaklega ætlað karlmönnum. Það eru alveg nokkur þarna sem að ég þyrfti að skrá mig á.

Og ný færsla á bitur.is

Natti - clock 22:25:27 - Saturday, 04.10.08 - pencil permalink