These boots are made for walking
Nancy Sinatra og Austin Powers var það fyrsta sem að ég hugsaði þegar ég mætti í vinnuna.
Kannski ekki ideal blanda, en engu að síður. Enda voru það ekki þessar persónur sem slíkar sem ég hugsaði um, heldur frasarnir/línurnar.
Á meðan "These boots are made for walking, and that's just what they'll do. One of these days these boots are gonna walk all over you." hljómaði í hausnum á mér, aftur og aftur, gat ég ekki annað en hugsað um "Honestly, who throws a shoe?!?" línuna úr Austin Powers.
Þetta er ekki venjan þegar ég mæti í vinnuna. En þetta á sér viku langan aðdragenda.
Fyrir rúmri viku síðan fór ég á árshátíð. Fór með tvenn pör af skóm, gömlu og nýju. (Einu pörin sem að karlmenn eiga, þeir sem þeir ganga í og þeir sem þarf að henda. "Til skiptanna" er eitthvað sem við notum um dekk, ekki skó.)
Eftir að hafa m.a. rennbleytt þá gömlu (heitapottsferð), þá endaði dvölin á hótelinu þannig að áður en ég fór daginn eftir, þá skutlaði ég gamla parinu í ruslatunnuna, og fór heim á nýju skónum sem ég fékk í jólagjöf.
Þegar ég mætti til vinnu s.l. miðvikudag þá voru skórnir komnir við skrifborðið mitt í vinnunni. fuckthewhat? Fékk þá útskýringu að konan á hótelinu hefði komið með "óskilamuni". Einhverjum fannst s.s. ekki að ég ætti að henda úrsérgengnum ecco skóm.
Ég tók skónna, og skutlaði þeim í ruslatunnuna hérna í staðinn.
Miðvikudag, fimmtudag, föstudag, lágu þeir óhreyfðir í ruslinu.
Nú þegar ég mæti á mánudeginum, er búið að tæma ruslið mitt. Nema að skónnum var ekki hent. Nósörrí. Þeir voru settir í stólinn minn, ásamt tilkynningu frá teyminu sem að snyrtir til hérna öðru hvoru.
"ER PÆLINGIN Í ALVÖRU AÐ HENDA SKÓNUM í BLAÐARUSLATUNNUNA Kv. SKÚRINGAGELLÍZZ ;xxx"
(Stafirnir voru svona litaðir... myndir seinna)
"And one of these days these boots are gonna walk all over you."
Þessar ruslatunnur hafa hingað til þjónað þeim tilgangi að henda blöðum, bananahýðum, eplum, jógúrtdollum, samlokuafgöngum og annað sem fellur af við borðin. En ekki skóm. Ónei. Og hér skal línan dregin!
Ætli sorpa myndi taka við skónum mínum, eða fengi ég þá bara sendingu með DHL og þyrfti að borga sendingarkostnað?
Spurning hvort það sé ekki best að setja þá í poka bara og geyma heima einhvernsstaðar, þá veit ég amk hvar þeir eru og þeir færu þá ekki að birtast í tíma og ótíma þar sem ég er.
10:14:24 - Monday, 23.02.09 -